Töfrablaðið Með aðgang? Skráið ykkur inn hér

Taktu mynd af perlunum þínum

Taktu myndina beint ofan frá, í góðri birtu. Perlumyndirnar fara í safnið þitt og þú getur haldið áfram að perla þær á perlubrettinu.

… eða dragðu mynd hingað

Safnið mitt

Ævintýrin ykkar

Hér haldið þið utan um ævintýrin ykkar. Opnið ævintýri til að prenta vinnubók, taka mynd af blaði eða sjá það sem þið hafið búið til.

Lokuð prófun

Úr vinnubók inn í tölvuleik

Þið lesið, reiknið, litið og perlið saman í vinnubók. Svo takið þið mynd af töfrablaðinu og það sem þið bjugguð til lifnar við í tölvuleik.

Við látum ykkur vita þegar fleiri fjölskyldur geta byrjað. Annað sendum við ekki.

Eruð þið með boð eða aðgang? Skráið ykkur inn

Töfrablað úr vinnubók: hetja sem hefur verið lituð reit fyrir reit
Þið litið hetjuna ykkar á töfrablað.
Sama hetjan í tölvuleiknum, úr perlum
Hetjan birtist í leiknum, perla fyrir perlu.

Svona virkar þetta

  1. Þið prentið vinnubók með sögu, þrautum og töfrablöðum.
  2. Þið lesið, reiknið, litið og perlið saman.
  3. Þið takið mynd af töfrablaðinu með símanum.
  4. Þið spilið ævintýrið sem þið bjugguð til sjálf.

Það sem gerist á blaðinu gerist í leiknum

Blaðsíðan um músina í vinnubók Veiðitjarnarinnar Hetjan talar við músina við tjörnina í leiknum
VeiðitjörninMúsin sem þið gefið nafn og teiknið á heima við tjörnina og talar við hetjuna.
Blaðsíðan Talnalásinn á kistunni Kistan opin í leiknum, full af gulli
VeiðitjörninTalan sem þið reiknið út í vinnubókinni opnar kistuna í leiknum.
Blaðsíðan um gamla veiðimanninn í vinnubók Svaðilfarar Alexanders Gamli veiðimaðurinn í leiknum
Svaðilför AlexandersVeiðimaðurinn sem þið lesið um og teiknið tekur á móti hetjunni í leiknum.

Blaðsíður úr vinnubók

Hver kafli hefur sína vinnubók með sögu, þrautum, dæmum og töfrablöðum. Þessar eru úr vinnubók Veiðitjarnarinnar.

Sýna fleiri blaðsíðurSýna færri blaðsíður

Ævintýrin

Hvert ævintýri hefur sína sögu, sinn heim og sínar vinnubækur.

Alexander gengur eftir veginum að hliðinu á Heimabænum Stóra ævintýrið Kemur bráðum

Svaðilför Alexanders

Eftir flóðið mikla leggur Alexander, sonur bæjarstjórans, af stað til að komast að því hvers vegna það kom. Leiðin liggur frá Heimabænum yfir Árvelli, inn í Perluskóg og upp í Hellafjöll.

Fimm kaflar, hver með sinni vinnubók.

  1. Heimabærinn
  2. Árvellir
  3. Perluskógur
  4. Hellafjöll
Hetjan við tjörnina í Veiðitjörninni, með fjársjóðskistuna Í prófuninni

Veiðitjörnin

Hetjan ykkar veiðir merkilegan fisk, talar við músina og opnar læsta kistu á bakkanum. Gott ævintýri til að byrja á.

Fleiri ævintýri á leiðinni

Týnda kisanKisan er týnd og hetjan fylgir sporunum hennar um allan bæinn.Kemur bráðum
DraugakastalinnÍ gamla kastalanum búa draugar sem langar mest af öllu að eignast vini.Kemur bráðum
Sjóræningja­eyjanHetjan siglir út á haf og leitar að fjársjóði sem er grafinn á lítilli eyju.Kemur bráðum
RisaeðlugarðurinnRisaeðlurnar hafa sloppið úr garðinum og hetjan hjálpar til við að finna þær allar.Kemur bráðum

Spurt og svarað

Hvað þurfum við?

Prentara, liti og síma til að taka mynd af töfrablöðunum. Leikurinn er spilaður í vafra, í tölvu, spjaldtölvu eða síma. Perlur og perlubretti eru skemmtileg viðbót en ekki nauðsynleg.

Fyrir hvaða aldur er þetta?

Fyrir 6 til 10 ára börn og fullorðna sem vinna með þeim. Yngri börn geta líka litað og perlað með hjálp.

Hvað kostar þetta?

Ekkert á meðan prófunin stendur yfir.

Hver sér það sem við búum til?

Aðeins þið og þeir sem þið sendið hlekkinn á leikinn. Myndirnar eru geymdar á aðganginum ykkar og þið getið eytt ævintýrinu hvenær sem er.

Hvað skráið þið um notkunina?

Við skráum hvað er opnað og valið í appinu og leiknum, til dæmis hvaða ævintýri þið byrjið á, hvort vinnubókin er prentuð og hvaða staði hetjan heimsækir í leiknum. Þannig sjáum við hvað virkar og hvað þarf að laga. Hjá þeim sem eru skráð inn tengist það aðganginum. Við notum engar vafrakökur, myndirnar ykkar og það sem þið skrifið fara ekki í þessa skráningu og henni er eytt eftir hálft ár.

Hvað er lokuð prófun?

Við prófum Töfrablaðið með fáum fjölskyldum áður en það opnar fyrir alla. Ef netfangið ykkar er á biðlistanum látum við ykkur vita þegar fleiri geta byrjað.

Viljið þið vera með?

Skráið netfangið ykkar á biðlistann og við látum ykkur vita þegar fleiri fjölskyldur geta byrjað.

Eruð þið með boð eða aðgang? Skráið ykkur inn

Spila

Hvernig virkar þetta?
  1. Prentið vinnubók kaflans. Prentið á A4 í raunstærð (100%) og bara öðrum megin á blöðin.
  2. Vinnið saman í henni. Í henni eru sögur, þrautir og dæmi. Sum svörin nýtast í leiknum, til dæmis talan sem opnar kistuna.
  3. Töfrablöðin fara inn í leikinn. Þau þekkjast á svörtu hringjunum í hornunum. Litið hvern reit með einum lit.
  4. Takið mynd af töfrablaði beint ofan frá og í góðri birtu, svo að öll fjögur hornin sjáist. Eftir nokkrar sekúndur er teikningin komin í leikinn.
  5. Perla opnar hlutinn á perlubretti í símanum. Þar getið þið breytt honum perlu fyrir perlu.
  6. Spilið saman. Leikurinn virkar í síma, spjaldtölvu og tölvu. Sendið ykkur tengilinn til að opna hann á stærri skjá.

Kaflarnir

Hver kafli hefur sína vinnubók og sína hluti sem þið búið til.

Myndasagan

Skrifið hér orðin sem þið skrifuðuð í talblöðrurnar. Persónurnar segja þau svo í leiknum.

Vinnubók

Prentið í raunstærð (100%), án spássíu, á A4. Prentið bara öðrum megin á blöðin.

Myndin og rammarnir

Hver perlumynd fær ramma. Dragðu brúnir eða horn hans til að ná meiru (til dæmis stofni trés), dragðu inni í honum til að færa hann, dragðu á myndinni til að teikna nýjan utan um eitthvað sem vantaði og ýttu á Delete eða × til að fjarlægja hann. Lestu svo aftur. Án ramma finnast perlumyndirnar sjálfkrafa.

Myndin

Litir

Hver litur sem fannst á myndinni, eftir að birtan var leiðrétt, og perlan sem hann varð. Veldu aðra perlu (úr málmi, sjálflýsandi …) og gerðu líkönin aftur. Perlumyndir sem hafa verið perlaðar á brettinu halda sínum perlum.

Á myndinniLeiðréttPerlaReitirΔE

Perlur

Hver perlutegund eftir auðkenni: litur í efni. Breyttu catalog/beads.json til að bæta við eða breyta (auðkenni breytast aldrei). „Greinanleg“ eru perlurnar sem ljósmynd getur greint í sundur.

Nr.KóðiNafnEnskaEfniLiturFágætiVirðiGreinanleg

Efni

LykillNafnEnskaMálmurHrjúfleikiGegnsæiLjómiGljáhúðFágætiVirði

Opna ævintýrið

Sláið inn kóðann sem þið fenguð þegar þið keyptuð ævintýrið.